20.2.2009 | 15:57
Atlantis
Föstudagsgrín um ályktunarhæfni
Það var vissulega gaman að synda um í Norður-Atlantshafi vestur af Madeira á Google Earth og skoða hið meinta Atlantis sem menn þóttust hafa fundið af neðansjávarmyndum sem aðgengilegar eru gegnum forritið:
Hið meinta Atlantis á Google Earth
Með mælistikunni í Google Earth kemur í ljós að þetta svæði er um 170 × 130 km að stærð, eða sem nemur 20% af Íslandi – eða, eins og krákan flýgur, frá Reykjavík austur að Vík í Mýrdal, og þaðan inn á miðjan Hofsjökul. Heldur stór borg, það!
Draumsýn um hið fornfræga Atlantis
En það er af Google Earth að segja að ég held barasta að enginn hafi komist niður á jafn sniðugt skráningar- og leitarkerfi fyrir staðreyndir um efnisheiminn eins og að merkja það hreinlega inn á kort í ótal gagnalögum sem tengjast forritinu – allt frá ljósmyndum og yfir í sýndarferð um sali Prado-safnsins
|
Fann Google Ocean Atlantis? |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Flokkur: Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 16:00 | Facebook


Andrés Magnússon
Einar Karl
Eyþór Arnalds
Ragnhildur Sverrisdóttir
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.